Framsóknarvilji vs þjóðarvilji

Sú regla, að ef ekki fer saman þjóðarvilji og framsóknarvilji skal framsóknarvilji ráða. Gunnar Bagi er búinn að afskrifa skýrslu atvinnulífsins, alveg sama hvað í henni stendur. Það er skýrt að meirihluti þessarar þjóðar vill kjósa um hvort ljúka eigi viðræðum eða ekki. Ef Gunnar Bragi biði upp á að setja málið í þjóðaratkvæði og gæfi það jafnframt út að ef þjóðin samþykki að ljúka viðræðum þá mundi hann stiga til hliðar, þá væri hann alvöru stjórnmálamaður. En það er hann ekki. Með því að  hafna skýrslu atvinnulífsins fyrirfram og að neita þjóðinni um þjóðaratkvæðagreiðslu er ráðherrann svo gjörsamlega að afhjúpa sig sem óhæfan stjórnmálamann. Hér hrundi efnahagslífið með öllum þeim hræðilegu afleiðingum, af því að við höfum haf of marga lélega stjórnmálamenn. Nú hefur Gunnar Bragi svo gjörsamlega stimplað sig inn í þann flokk.
mbl.is Fullkomlega óábyrgt að halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, ráðherra.

Já, ráðherra voru breskir framhaldsþættir sem sýndir voru á ruv fyrir nokkrum árum. Ráðuneytisstjórinn Humphrey Appelby fór þar á kostum. Stjórnaði ráðuneytinu algjörlega og ráðherrann vissi varla hvað var að gerast þar innan dyra.Eitt af hlutverkum ráðuneytisstjórans var að leka því sem leka þurftir í fjölmiðla. Áhorfendur veltust um af hlátri yfir aðferðum ráðuneytisstjórans. Af einhverju ástæðum hefur þetta lekamál hér á landi orðið svo hund leiðinlegt að ég fæ æluna í hálsinn þegar það birtis dag eftir dag í fréttum.  Er ekki kominn tím til að taka þetta af dagskrá?
mbl.is Tugir mótmæltu við ráðuneytið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt skrímsli þessi vísitala.

Ef sígarettupakkinn hækkar, þá hefur það áhrif á vísitöluna og lánin okkar hækka. Sama er með áfengi og yfirleitt allt sem hreyfist. Ef bílalán lækka niður í núll, þá lækkar ekki vísitalan, nei þvert á móti er hætta á að hún hækki eins og Frosti bendir á í þessari grein. Er ekki komin tími til að ráðast með lurkum á þetta skrímsli sem heitir vísitala.
mbl.is Bílalánin í reynd ekki ókeypis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsi og helsi.

Ríkisvaldið hefur ótrúlegt frelsi til að skattleggja einstaklingana.Gott dæmi er fasteignaskattur, þar sem einstaklingar sem eiga íbúð eru skattlagðir þó svo að þeir eigi minna en ekki neitt í íbúðinni.  Annað er uppi á teningnum þegar fjármagnseigendur og fjármagnsfyrirtæki eiga í hlut. Þá virðist það ekki bara bannað að skattleggja  heldur stórkostlega refsivert. Bankar í slitameðferð  mega græða út í það óendanlega. En eru varðir fyrir skattlagningu af stjórnarskrá. Stundum finnst mér ég sé staddur í landi fáránleikans.
mbl.is Skatturinn brot á eignarrétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur fyrir á bestu bæjum.

Ég minnist þess að hafa heyrt um bát sem sigldi inn á vitlausan fjörð á austfjörðunum. Báturinn snéri við þegar hann áttaði sig á mistökunum og tók síðan rétta kúrsinn, og engin skaði hlaust af.
mbl.is Risaþotan tókst á loft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mismunandi sýn borgaryfirvalda.

Boris Johnson hefur þá sýn að byggja flugvöll á Thames ánni. Með því vil hann örva viðskipta og mannlíf Lundúna. Í Reykjavík hugsa borgaryfirvöld í þveröfuga átt, þ.e vilja flugvöllinn burt úr miðjunni og  vilja helst losna við hann í annað sveitarfélag suður með sjó. Stundum finnst manni það ekki tilviljun að saga viðskipta og banka sé með þeim hætti sem við þekkjum svo vel hér á landi, með þeim skelfilegu afleiðingum sem við erum nú að upplifa. Við erum með of mikið af undirmálsmönnum í framvarðasveitinni. Skortur á hæfum stjórnendum er tilfinnanlegur.
mbl.is Vilja nýjan flugvöll á Thames
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragnar, eru fræðimaður eða fúskari?

Ekki rekur mig minni til þess að þú hafir lagt fræðilegt mat á eða haft af því áhyggjur þegar hvað stærstu kvótasölurnar fóru fram á árunu 1995 til ársins 2005. Þá seldu margir kvótann sinn og fengu miljónir og miljarða í sinn vasa. Þessi kaup útgerðarinnar voru að langmestu fjármögnuð með lántökum. Niðurstaðan var stóraukin skuldastaða útgerðarinnar sem endaði með þeim ósköpum sem allir þekkja. Þær spurningar sem sitja eftir og fræðimenn eins og þú ættir að svara, eins og þær, af hverju seljendur sem voru með miljarða í vasanum fjárfestu ekki í sjávarútvegi? Þeir fjárfestu freka í bönkum, verslun og allavega bréfarusli. Þrátt fyrir að við höfðum það besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi. Ekki man ég eftir því að þú hafir haft af því sérstaka áhyggjur að við sölu á aflaheimildum þurftu seljendur aðeins að greiða 10%af sölunni til þess aðila sem á auðlindina þ.e íslensku þjóðarinnar. Aldrei hef ég heyrt þig leggja mat á það kerfi sem unnið hefur verið eftir hvað varðar söluhliðina á aflaheimildum. Þar gilda engar reglur. Berðu saman sölu á verðmætum eins og gulli,áli, olíu og fl.  verðmætum. Sala á þessum verðmætum fer öll eftir mörkuðum sem óháðir eru kaupendum og seljendum. Á Íslandi er það best að hafa engar reglur nema þær sem LÍÚ býr til á sínum kontor. Allir sem vilja opna augun sjá að hér er um hreina idiotik að ræða. Háskólinn baðst afsökunar á sínum tíma á andvaraleysinu sínu fyrir hrun, og að hafa ekki spurt spurninga. Sennilega hefur sú afsökunarbeiðni farið framhjá þér. Sú ræða sem í þessari grein er vitnað til á ekkert skilt við fræðimennsku, mikið frekar fúsk. Útgerðin hefur verið að skila tugum miljarða í hagnað. Íslenskur almenningur er skattpíndur upp fyrir haus. Er það þín sýn á þjóðfélagið að herða eigi enn frekar skatta á almenning? Ég lít á þig sem talsmann LÍU ekki fræðimann. Sennilega er LÍÚ þau hrokafyllstu samtök sem fyrirfinnast á landinu þó víða væri leitað. Þú hefðir sómt þér vel sem arftaki Friðriks. Þú og LÍÚ sem er í mínum huga eitt og það sama ættu freka að hlust á íslenskan almennig og hætta að koma fram við sama almennig eins og að hann sé fífl. Það er marg gott í íslenska kvótakerfinu , en svo er þar margt sem ekki er hægt að flokka undir slæma stjórnun freka stjórnunarleg afglöp. Það er einlæg ósk mín að frá HÍ komi meira að fræðimennsku og minna af fúski. Er ekki kominn tími til að LÍU og þú Ragna eigið vinsamlegar viðræður við þjóðina og þið hættið að ögra henni. Til að ná árangri í sjávarútvegi verður að ríkja gagnkvæmt traust og virðing, en þar vantar nokkuð mikið á.
mbl.is Veiðigjöld stórskaða íslenskan sjávarútveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dönsk (eðal) kattarkerling.

Þar sem sú danska, sem ferðast um á einkaþotu þarf ekki að leggja út fyrir fundarlaunum ætti hún að styrkja björgunarsveitirnar um ca 10% af fundarlaunum. Það voru ekki nema nokkrir tugir af björgunarsveitarmönnum sem fóru úr vinnu sinni til leitar. Það  væri sanngjarnt að björgunarsveitirnar fengju  u.m.þ.b 10.000 kr. (íslenskar)


mbl.is Danski kötturinn fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér þarf blaðamður að læra meira um stórar tölur.

Í þessari frétt er sagt að skuldir Japana séu komnar yfir eina trilljóna markið. Jafnframt setur blaðamaður í sviga kvatrilljónir sem er einfaldlega villa. Kvatriljónir eru  milljón triljónir og eru miklu stærri tala en skuldir Japana. Ef fréttin hefði verið rétt skrifuð hefði fyrirsögnin verið. Skuldir Japana komnar yfir einn billjarð. En eins og allir vita er einn milljarður þúsund þúsundir. Einn biljarður er milljón milljónir. Ein trilljón er síðan milljón biljarðar og ein kvatriljon síðan milljón trilljónir.

Það sem kannski er að rugla blaðamann eru beinar þýðingar úr enskri tungu yfir í íslenskt mál. En í Bandaríkjunum (og nokkrum öðrum löndum) er einn milljarður skrifaður billjarður, og einn billjarður skrifaður triljarður og svo koll af kolli. En blaðamaðurinn er að sjálfsögðu að skrifa fyrir íslenska lesendur og á að hafa þetta rétt.


mbl.is Skuldirnar komnar í 1 trilljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostleg uppgötvun.


Hér virðist greinarhöfundur hafa komist að stórkostlegri uppgötvun, eftir vísindalega athugun. Þeir horfðu á heilan landsleik drukku bjór og þurftu varla að pissa, hvað þá að til einhverra vandræða hafi komið.  Það er með ólíkindum hvað framleiðendur á bjór eru klókir í markaðsettningu á vöru sinni. Þessir framleiðendur eru gjarnan með bestu markaðsfræðinga og markaðsþekkinfgu innan sinna vébanda. Markmiðið er skýrt hjá markaðfræðingunum þ.e að tengja saman fótbolta og bjór órjúfanlegum böndum. Þegar fótbolti er annars vegar þar skal drukkið bjór. Þetta er mjög þekkt t.d í Bretandi. Fótbolti og bjór er eitt og það sama. Því fyrr sem börn og unglingar skilja þetta þeim mun betra, salan eyks, markmiðinu er náð. Á sama tíma standa Bresk stjórnvöld frami fyrir því að áfengi og eða áfengis drykkja þjóðarinnar er að verða þeirra stærsta vandamá og viðfangsefni. Birtingarmynd drykkjunar í Bretlandi er hvergi skýrari en í kringum fótboltan þar í landi. Markaðsöflin er að berjast á topnum á meðan stjórnvöld eru að berjast við að halda sér í deildinni. Staðreyndin er einföld. Það er ekker samasemmerki á milli bjórs og fótbolta nema síður sé. Ef þú er að horfa á  góðan fótbolta þá þurfa öll skilningarvit að vera í lagi. Það væri mikið rökréttara að fá sér lýsi fyrir leik. Lýsi er gott fyrir sjónina og yfirleitt öll skilningarvit.
mbl.is Alls engin vandræði í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband