Hvað með virðisaukaskattinn?

Verður virðisaukaskattur á þessum reikningi sem ríkið fær? Í hvaða vsk þrepi flokkast sala á upplýsingum. Ef að líkum lætur verður verulegur virðisauki af þessum viðskiptum og því eðlilegt að leggja á virðisaukaskatt. En hvað með þjófinn sem stal gögnunum og seldi. Hvað skatt borgar hann af þessum viðskiptum.Ef þessi maður er íslenskur flokkast þá þessar tekjur sem launatekjur eða verktakagreiðslur? Mér finns mjög mikilvægt að þetta liggi fyrir. Ég hef hugleitt það alvarlega að fara út í þessa starfsemi þ.e stela og selja þá er gott að vita hvar maður stendur.


mbl.is Tvöfalt siðgæði skattyfirvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær í andskotanum?

Hvenær í andskotanum getum við sagt að þetta mál sé að baki og íslenskir stjórnmálamenn og íslenskt stjórnkerfi fari að  vinna að þeim verkefnum sem skipta meira máli og horfa til framtíðar. Þetta mál er komið á það stig að ég þarf orðið að ganga með ælupoka á mér hvert sem ég fer. Er þetta helvítis mál ekki búið að fá nóg rými í íslensku þjóðlífi síðust mánuði?


mbl.is Samantekt á álitsgjöf Tryggva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvert er hlutverk alþingismanna?

Þann 03.12 síðastliðinn fór þessi sami Ásmundur í pontu þingsins og ræddi þar hvernig bankinn fór  með offorsi að erlendri fjölskyldu og hafði af þeim íbúð þeirra fyrir skuld sem var að upphæð 50.000 kr. Lýsti Ásmundur ágætlega hvernig óréttlætið í innheimtumálum væri ómanneskjulegt og ógeðfellt. Staðreyndin er hins vegar sú að innheimtufyrirtæki og bankar vinna nákvæmlega eftir lögum sem sett eru á alþingi. Finnist Ásmundi lög um innheimtu vera óréttlát á hann að leggja fram frumvarp til laga og breyta lögunum. Nú vill Ásmundur kanna bakgrunn ákveðinna þjóðfélagshópa. Ef til er eitthvað sem heitir pólitískur ómöguleiki þá er það sennilega það að ætla að taka ákveðið mengi út úr þjóðfélagsmyndinni og kanna bakgrunn þeirra.Stundum finnst mér eins og að alþingismenn séu ekki með það á hreinu hvert hlutverk þeirra er í samfélaginu. 


mbl.is Sakar Ásmund um fávisku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað má skattlegga?

Mín upplifun af skattlagningu ríkisvaldsins, er að það er með ólíkindum hvað hægt er að skattleggja og hvaða tegundir af sköttum hægt er að leggja á einstaklinga. Það má staldra við fasteignaskatt. Eftir hrun var það mjög algengt að einstaklingar áttu minna en ekkert í fasteignum sínum. Samt þarf þú að borga fasteignaskatt af eigninni. Í raun er verið að borga skatt af skuldum. Ef ríkið hefur ekki þann rétt að leggja bankastatt á bankana, þá erum við komin að einhverskonar endamörkum sem samfélag. Í raun er það kjarkur Íslandsbanka að bjóða almenningi upp á þetta prógramm sem þessi bankinn er að setja í gang. Er hér ekki ágætt dæmi um hvað fólk getur orðið veruleikafyrt og úr sambandi við umhverfi sitt.


mbl.is Búið að kæra bankaskattinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver ber ábyrgðina?

Þetta gjaldþrot er fjórðungur af þeirri tölu sem kostað að leiðrétta skuldir heimilanna í landinu. Er ekki talað um að lausn á  læknadeilunni muni kosta ca 3 miljarða, séu hlutirnir settir í samhengi. En eftir þetta gjaldþrot mætti ætla að þrengdi að þjá þessum ágætu mönnum. En er svo? Nei,. Þetta eru stórútgerðamenn í dag. En hverjir eru ábyrgir fyrir þessu? Gerist þetta ekki í skjóli íslenskra laga og reglna? Hverjir eru ábyrgir fyrir íslenskum lögum og regluverki? er það ekki alþingi íslendinga? Er þetta ekki nokkuð skýr mynd um það hvernig sérhagsmunagæsla virkar. Ég geri Alþingi íslendinga 100% ábyrga fyrir svona rugli.


mbl.is 21 milljarða gjaldþrot hjá Jakobi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnaðarstefnan á meira skilið en þetta.

Það er með ólíkindum að Árni Páll skuli reka þessa tegund af pólitík. Árni Páll er þarna að grafa sína egin gröf. Stundum er lífið eins og flókin staða á taflborði þar sem öllu máli skiftir að finna réttan leikinn í stöðunni. Samkvæmt kynningunni sem ég var að horfa fengu 2500 manns 36 miljarða eða rúmar 14 miljónir á mann í 110% leið Jóhönnu og Steingríms. Þvílík hræðilegur afleikur á flókinni stöðu á taflborði stjórnmálanna. Þessi afleikur verður vonandi aldrei toppaður. Af hverju fagna ekki jafnaðarmenn að það sé verið að syrkja íslenskar fjölskyldur. Við borgum þetta sjálf.... Hvað borgum við ekki sjálf? Borgum við ekki heilsugæslu, löggæslu, menntun barna okka o.fl o.fl sjálf. Aðalatrið til að byggja upp þjóðfélag er að styrkja stöðu fjölskyldunnar, sem er hornsteinn allra þjóðfélaga. Þessi pólitík Árna Páls er aumkunaverð. Jafnaðarstefnan á betra skilið.


mbl.is „Niðurstaðan afskaplega ósanngjörn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað fóru margir stjórnmálamenn fram með þessa stefnu?

Ef spurt er. Hversu margir stjórnmálamenn í bandaríkjunum fóru með þessa stefnu fram í síðustu kosningum  þ.e að auka bilið milli ríkra og fátækra. Þá er svarið sennilega ekki einn einasti. Af hverju gerist þetta þá. Þetta gerst af því að stjórnmálamenn stjórnast af sérhagsmunum. Nákvæmlega það sem er að gerast á íslandi. Að kosningum loknum afhenda stjórnmálamenn völd sín til sérhagsmunahópa . Við höfum svo margar skýrar myndi af þessu hér á landi. Þetta fyrirkomulag getur ekki endað öðruvísi en með miklum ófriði.
mbl.is Ójöfnuðurinn sá mesti í öld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stýrivextir 120 sinnum hærri á Íslandi en í Evrulöndum.

Í þessari frétt kemur fram að seðlabanki EVRÓPU ætlar að halda stýrivöxtum óbreyttum þ.e í 0,05 %. Á Íslandi eru stýrivextir 6% eða 120 sinnum hærri. Nú nýverið lenti sá er þetta skrifar í þeirri ógæfu að greiða reikning frá Orkuveitu Reykjavíkur 26 dögum of seint. Vegna þessa yfirsjónar minnar fannst OR eðlilegt og væntanlega sanngjarn að refsa mér með því að reikna 269,4% árs dráttavexti ofan á reikninginn. Hér erum við lokuð inni í girðingu okurvaxta. Ég hef á því vissan skilning að fleiri og fleiri sýni því áhuga  að sameinast Noregi og lifa og starfa eftir þeirra laga og regluverki. Ég sé vissa þrepaskiptingu í þessum vaxtamálum. Fyrst þrepið stjórnast af ofsagróða. Í kjölfar ofsagróða fylgir siðblinda. Það að rukka viðskiptavini sína um ársvexti  sem er mæld í hundruðum prósenta er siðblinda. Ég vil ekki að börnin mín alist upp í þessari geðveiki vaxa. Ég vil að börnin mín alist um í sambærilegu vaxtaumhverfi og börn sem búa í nágrannalöndum okkar. Ég velti því fyrir mér hvað sé hægt að gera til að stoppa þessa geðveiki. Það er ekki hægt að  kjósa okkur frá þessu. Svo virðist vera sem lýðræðið sé óvirkt til að laga þetta. Það sem ég vil og ætla að styðja ef ekki eru aðrar leiðir er ófriður. Sennilega verður þessu ekki breitt nema með borgaralegri óhlýðni. Mín tilfinning er sú að þrýstingurinn sé stöðugt að aukast, sem endar bara á þann vega að kerfið springur.
mbl.is Vextir á evrusvæðinu óbreyttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers virði er valdið?

Skildi þetta vera nóg vald til að segja Vigdísi Hauksdóttur að halda kj...
mbl.is Gegnir fimm ráðherraembættum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamaldags hugsunarháttur Sandgerðinga.

Ég sé ekki betur en þetta sé úreltur og gamaldags hugsunarháttur Sandgerðinga. Ég bý í Reykjavík. Ætti ég val um það að fá ódýrari þjónustu lægri vexti og lægri þjónustugjöld, og allur Landsbankinn flyttist í heilu lagi í  Sandgerði, kysi ég svo. Minn draumur í bankamálum er eð ég gæti farið inn í einhvern banka á norðurlöndum og eða evrópu og sagt við þá. Svona líta viðviðskipti mín út við LÍ síðustu áratugi getið  þið boðið mér eitthvað betra. Að sjálfsögðu færi ég í td Nordea sem ég er nokkuð búinn að skoða. Vandamálið er að ég er lokaður inni í girðingu okurvaxta og lélegrar þjónustu hér á Íslandi. Í mínum huga er það mælikvarði á góða þjónustu mér til handa ef ég þyrfti aldrei að fara inn í banka heldur gæti ég gert öll mín bankaviðskipti á netinu í heimabankanum.
mbl.is Skora á Landsbankann að hætta við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband