22.3.2009 | 15:12
Kæru flokksyskin þið verðið að skýra þetta út fyrir mér.
![]() |
Einar efstur, Ásbjörn nú annar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.3.2009 | 13:50
Athugasemdir við drög að áliktun á landsfundi sjálfstæðisflokksins.
Neðanskráðan pistil setti ég inn á vef xd.is þar sem búið er að leggja fram drög að áliktun landsfundar. Athugasemdir mínar eru við drög um sjávarútvegsmál. Netið er og á að vera lifandi miðill. Mig undrar það nokkuð að enginn skuli vera búinn að setja neinar athugasemdir við neinn málaflokk. Eg kemst því miður ekki á landsfund, en vil engu að síður leggja mitt fram. Ég skora jafnframt aðra sjálfstæðismenn að leggj inn athugasemdir.
Þetta fór inn sem athugasemdir á vefinn xd.is
Þetta eru ótrúleg gögn til að leggja fyrir landsfund. Nokkrar staðreyndir. *Sjávarútvegsmál hafa verið á forræði sjálfstæðisflokksins í áraraðir. *Íslenski flotinn er orðin gamall og úreltur. Þannig er aldur 51skips hjá 5 stærstu útgerðum landsins orðin aldarfjórðungs gamall. *Sjávarútvegurinn er yfir skuldsettur. Þrátt fyrir mjög litlar fjárfestingar og endurnýjanir innan greinarinnar. *Markaðskerfi með aflaheimildir er markaðskerfi fáránleikans. Án nokkurs regluversk. Þetta flýtur einhvernvegin á milli rassvasa nokkurra manna. *Síðast en ekki síst þá logar landið stafna á milli í óánægju með fiskveiðistjórnunarkerfið. Þetta plagg verður að endurnýja frá grunni. Yfirskriftin á að vera (að mínu viti)Náum sátt við þjóðina í sjávarútvegsmálum. Vegvísi í þá átt þarf að skapa á landsfundi. Mín tillaga er að þetta plagg verði rifið og nýtt skrifað. Nokkrir puntar. *Stefnumörkun í hversu mikið magn skuli fullvinna í landinu. *Búa til nýtt regluverk varðandi sölu á aflaheimildum. Bæði varanlegum og einnota. Þar sem þróuð lögmál markaðarins ráða. *Opna umræðu um hvort að fleiri en útgerðamenn meigi eiga aflaheimildir t.d einstaklingar og lífeyrissjóðir. *Innkalla aflaheimildir þeirra sem fóru of geyst og ekki geta staðið undir skuldbindingum sínum.Þær heimildir fara á markað. Ég er tilbúinn til að taka þátt í þessari vinnu þ.e "vegvísi til sátta við þjóðina í sjávarútvegsmálu" Við sjálfstæðismenn höfum skilið illa við eftir 18ár í stjórn. Það á líka við um sjávarútvegsmál við verðum að viðurkenna það. Nú er tímapanturinn til að hafa kjark. Kjark til að breyta um stefnu í sjávarútvegsmálum. Ef við ætlum að halda áfram með óbreytta stefnu í sjávarútvegsmálum verðum við í hlutverki fiðluleikaranna á Títanik. Með von í brjósti að nú sé tíminn til að sýna að við höfum kjark. Með bestu kveðju. Egill Jón Kristjánsson
Egill Jón Kristjánsson |
20.3.2009 | 20:44
Bölvaðir aular gátu þetta verið.
![]() |
Sparisjóður Bolungarvíkur óskar eftir ríkisstuðningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2009 | 20:53
Ótrúleg sýn Samfylkingarfólks.
Um síðustu helgi kaus ég í prófkjöri sjálfstæðisflokksins. Þar komst Guðlaug Þór ekki á blað hjá mér. Ég bíð ekki eftir einhverjum dómi frá einhverju sérvöldu fólki sem á að finna út hverjum efnahagshrunið er að kenna. Síðasta ríkistjórn ber öll ábyrgð á því sem gerðist. Að fólk sé að velta því fyrir sér hvort einhver í ríkisstjórninni beri pínulítið meiri ábyrgð en annar ráðherra er ótrúlegt. Jóhanna Sigurðardóttir ber fulla ábyrgð á efnahagshruninu. Hvernig hlutirnir eru að þróast er ótrúlegt. Ég á eftir að blogga nú fyrir kosningar þar sem ég skora á flokkssystkin mín í sjálfstæðisflokknum að strika út alla þá einstaklinga sem í framboði verða og voru jafnframt ráðherrar í síðustu ríkisstjórn. Ég skora jafnframt á Samfylkingarfólk að gera slíkt hið sama. Ríkisstjórn ber sameiginlega ábyrgð á stjórnun ríkisins. Ef við kjósendur höfum það umburðarlyndi til ráðamanna að þeir geti jafnvel sett ríkissjóð á hausinn og það sé allt í lagi, þá verða ekki þær breytingar í þjóðfélaginu sem við þurfum á að halda. Það er ekki bara slys ef Jóhanna Sigurðardóttir á að leiða okkur inn í bjartari framtíð. Heldur stórslys. Jóhanna fékk sitt tækifæri og klúðraði því. Eins og áður segir þá komst Guðlaugur Þór ekki á blað hjá mér. Það sama hefði gilt um Geir H. Haarde hefði hann verið í framboði. Báðir þessi einstaklingar eru fyrirmyndar menn og búnir miklum mannkostum, þeir fengu sín tækifæri sem þeir því miður stóðu ekki undir. Við kjósendur fáum möguleika nú í kosningunum. Við getum sent skilaboð. Notum tækifærið.
![]() |
Jóhanna svarar kalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.3.2009 | 09:37
Ég finn stórann mun.
![]() |
Stýrivextir lækkaðir í 17% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2009 | 18:15
Hvað keypti Björgólfur fyrir lífeyrinn okkar?
Maður veltir því fyrir sér hvort þetta dý sé botnlaust. Skildi Björgólfur hafa keypt sér Bentley fyrir lífeyrinn okkar? Eða skildi hann haf keypt sér leikmann til að spila með West Ham? Eða ætli hann hafi keypt sér þotu? Hvað gerði hann við lífeyrinn okkar?
![]() |
Fimm lífeyrissjóðir í rannsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.3.2009 | 15:52
Áfengi í matvöruverslanir?
![]() |
Brown: Hafnar áfengisgjaldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
12.3.2009 | 07:28
Gæti fólk verið að vakna?
Ríkisstjórn ber ábyrgð á stjórnun ríkisins. Ekki bara einn og einn ráðherra heldur öll ríkisstjórnin. Jóhanna var í þeirri ríkisstjórn sem stein svaf á meðan ríkið fór fram af brúninni. Þvílík þjóð sem ætlar að gera einn að þeim ráðherrum sem komu ríkinu á hausinn að forystumanni sínum við endurbyggingu þjóðfélagsins. Þvílík blinda. Gæti verið að Samfylkingarfólk væri að vakna? Jóhanna Sigurðardóttir kom íslenskri þjóð á hausinn. Út með hana.
![]() |
Enginn mætti í blysförina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.3.2009 | 15:57
Silly time
![]() |
Vilja ræða efnahagsfrumvörp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2009 | 17:32
Ef ég væri ekki hér væri ég einhverstaðar annarstaðar.
Það var athyglisverð grein sem Indriði H. Þorláksson skrifaði á bloggsíðu sína og rakti þar í löngu máli hversu álverin á Íslandi hefðu litla þýðingu í íslensku þjóðarbúskap. Þetta var mikill langhundur þar sem tölum og töflum var flaggað með miklum og flóknum skýringum. Ég rakst nú nýverið á skýringar og andmæli tveggja kvenskörunga í íslenskum fyrirtækjarekstri, frá þeim Rannveigu Rist í Stralumsvík og Erni Indriðadóttur hjá Fjarðaráli. Hvor um sig skrifað örfáar línur í Fréttablaði þar sem þær greindu frá tölulegum staðreyndum úr sínum fyrirtækjum. Þær staðreyndir verða ekki rakta hér en eru í algjörum takti við það sem menn sjá, vilji þeir á annað borð sjá eitthvað til álvera og rekstur þeirra í íslenskum veruleika. Einkennilegust voru þau rök Indriða H. að ef þeir starfsmenn sem vinna í álverum í dag væru ekki að vinna þar, væru þeir að vinna einhverstaðar annarstaðar og vinnuleg áhrif álveranna því engin. Það er athyglisvert að heyra hvernig VG vitna nú í skýrslu Indriða og segja að áhrif álveranna sé svo lítil að við eigum ekki að líta til þeirra. Stærst verkefni VG og annarra stjóirnmálaflokka er að skapa atvinnutækifæri hér á landi. Ungt fólk verður að fylgjast vel með fyrir kvað menn standa sem bjóða sig fram til alþingis nú í vor.