Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Að taka snúning á markaðinn.

Það er ég viss um að útgefandi hafi sagt í skype viðtali við félaga sína að hann ætli að "taka snúning á markaðinn". Ég var að klára þessa bók 50 Gráir skuggar. Það leikur engin vafi á því að þetta er sú láng lélegast bók sem undirritaður hefur lesið. Fyrir utan að vera mjög klámfengin, þá eru aðalpersónur einstaklega óintresant fólk og söguþráðurinn ómerkilegur. Samhliða því að ákveða að klára bókina ákvað ég að lesa aldrei neitt eftir þennan höfund. Það er með ólikindum hvaða rusl er hægt að selja ef markaðssetningin er rétt. Þetta er sennilega það sem fagmenn kalla "að taka snúning á markaðinn."


mbl.is Fimmtíu gráir skuggar selst best
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsþingmenn.

Upp í hugann kemur mynd sem tekin var í bakgarði Alþingis af ótrúlegum fjölda þingmanna sem allir voru frá Siglufirði. Þessir þingmenn voru þingmenn fyrir mismunandi kjördæmi. Einar er sennilega fremstur í flokki þeirra sem vilja byggja upp gamla "góða" Ísland eins og það var fyrir hrun. Er ekki kominn tími til að þingmenn líti á sig sem landsþingmenn en ekki höfuðborgarþingmenn og landsbyggðarþingmenn. Hagsmunirnir hljóta að vera sameiginlegir fyrir alla landsmenn.
mbl.is Óréttlæti gagnvart landsbyggðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki benda á mig.

Ef ég man rétt þá varð hér hrun árið 2008. Afleiðingin var að þúsindir heimil í landinu urðu eignalaus og eða gjaldþrota. En. Þetta var ekki stjórnaskránni að kenna, ekki Davíð Oddsyni (varaði við segir Hannes Hólmsteinn), ekki ríkistjórn Geirs Haarde (eða neinum hans ráðherrum, allavega ekki Jóhönnu eða Össuri), ekki okkar ágætu bankastjórum, ekki kvótakerfinu, ekki fjármálaeftirlitinu, ekki þingmönnunum okkar, ekki ............

Þess vegna er í lagi að byggja upp nýtt Ísland nákvæmlega eins og það var.


mbl.is Feigðarflan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ekki að lækka verðið?

Sú staðreynd að notendur Hvalfjarðarganna í 20 ár þ.e þeir sem hafa farið um göngin frá 1998 og munu fara um göngin til ársins  2018 skuli borga göngin að fullu, hlýtur að teljast undarlegt í meira lagi.Þannig fá þeir sem nota göngin eftir árið 2018 væntanleg að nota göngin sér að kostnaðarlausu. Göngin standa væntanlega um aldur og ævi. Væri ekki rétt að dreifa kostnaðinum yfir á fleiri notendur yfir lengra tímabil ? Væri ekki ráð að lækka verðið strax?  


mbl.is Spölur skuldlaus árið 2018
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverful hamingja.

Sennilega hefur hamingjan með kvótakerfið hvergi verið meiri en í Vestmannaeyjum. Þannig fóru skip frá öðrum byggðalögum inn í púllíuna í Vestmannaeyjum og hamingjan þar á bæ var mikil. Rökin þekkja allir. Er ekki betra að veiða á eitt skip þar sem áður var veitt á tveimur. Frá Höfn fór til dæmis Æskan SF sem síðar varð Drangavík. Ég er ekki grunlaus um að bankinn hafi þvingað í gegn þessa sölu. Önnur dæmi væri hægt að nefna þar sem skip og kvóti fluttust frá öðrum stöðum á landinu til eyja. En hamingjan er hverful. Nú er kvóti og skip að yfirgefa eyjarnar. Nú spyrja þeir sem voru í hamingjuvímu yfir kvótakerfinu. "Hvar er réttlæti þessa heims"?
mbl.is Vestmannaeyjabær vill fá svar fyrir föstudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er rangt að útgerðamenn eigi kvótann.

Það má með nokkru sanni segja að útgerðamenn séu ekki stærstu kvótaeigendur. Hið rétta er að það eru bankarnir sem eiga kvótann. Í tilfelli BH er það bankinn sem ákveður hvernig  ráðstafa skuli kvóta þess fyrirtækis þegar það er nú komið í þrot. Þjóðin (sem á jú kvótann að sögn)er aðeins aumur áhorfandi. Sjómannafélög gera einhverjar samþykktir. Þær skipta minna en engu máli. Stjórnmálamenn hafa einhverjar skoðanir á málinu, en þær skipta engu máli. Það er bankinn sem ráðstafar kvótanum. Hvað eimum við að kjósa? Ég held að það skipti engu máli þér eru það bankarnir sem ráða örlögum okkar.
mbl.is Störfum 40 sjómanna stefnt í óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðislækkun eða leiðrétting.

Nú lækkar virði kvóta HB Granda um 22 miljarða króna eftir að kvótastaðn var sett í próf. Það er ekki annað hægt en að hugsa til þess tíma er virði kvótans var að aukast. Jafnt og stöðugt jókst virði kvótans og fór verðmæti t.d eins kílós af þorski í 4500 kr. Þessi verðmæti gengu kaupum og sölum. Þáverandi stjórnvöld horfðu á þetta gerast án þess að aðhafast nokkuð. Skattlagt var 10% af söluvirði, afganginum hélt seljandinn. Þannig runnu miljarðar í ómældum einingum út úr sjávarútvegi. Það sem er kannski einna athyglisverðast var að  þeir sem seldu og voru með þessi verðmæti í höndunum, virtust að mjög takmörkuðu leiti hafa áhuga á að fjárfesta í sjávarútvegi. Sjávarútvegi þar sem er að sögn með besta kerfi í heimi. Margir fjárfestu í verslun aðrir í bönkum og svo frv. Enn aðrir fóru með peningana úr landi og komu inn með þá aftur og fjárfestu í vaxtamun Seiðlabana. Þeir peningar eru nú fóður í snjóhengjunni sem sem yfir Íslendingum hangir og er ástæða gjaldeyrishafta. HB Grandi hefur sýnt að þeir eru í forystu í Íslensku sjávarútvegi, það getur ekki annað en talist eðlilegt annað en að lofti sé hleypt út úr kerfinu   og virði kvótans sem var kominn út fyrir öll mörk fært niður..   
mbl.is Tap og virðislækkun hjá HB Granda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að tala tungum tveim.

Nú er ég ofsalega ósammála flokksbróður mínum Kjartani. Sjálfstæðismenn hafa talað fyrir því að það þurfi að örfa atvinnulífið. Við getum velt því fyrir okkur hver staðan væri í dag ef sú ákvörðun hefði verið tekin að hætta við bygginu húsins síðla árs 2008. Hvað hefð  borgin þá fengið mikið í fasteignagjöld? Hverjar eru óbeinar tekjur (ekki í rekstrarreikningi Hörpu) af húsinu í dag. Það er trú mín að hárrétt ákvörðun hafi verið tekin með því að klára húsið. Það hefði verið í anda núverandi stjórnar að gera ekki neitt . Blessunarlega var tekinn sú ákvörðun að kára húsið. Það kann ekki góðri lukku að stýra fyrir stjálfstæðismenn að tala fyrir örfun atvinnulífsins og tala það síðan niður þegar eitthvað er gert. Það heitir að tal tungum tveim
mbl.is Hrakspár vegna Hörpu að rætast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta þarf að skýar mikið betur.

Það er útilokað að skilja það að á sama tíma og erlent verð á bensíni lækkar um 25%, lækki verðið hér um 7,7% og að skýringanna sé að leita í skattlagningu á bensín. Hér bregst mbl gjörsamlega hlutveri sínu. Að ég best vissi þá er öll verðlagning á bensíni prósentutengdar. Á meðan ég fæ ekki frekari skýringar á þessari stærðfæði þá styðst ég við þá kenningu mína að þeð gengur hreinlega betur að hækka verðið, þegar  heimsmarkað hækkar, en þegar formerkin snúast við. 
mbl.is 25% lækkun olíuverðs frá 1. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þú ættir að skammast þín Einar.

Þegar þú varst sjávarútvegsráðherra og markaður fyrir aflaheimildir var stjórnlaus. Bankamenn lánuð til kaupa á varanlegu aflaheimildum eins og fávitar. Þannig fór eitt kíló af þorski allt upp í 4500 kr kílóið. Hvað fannst þér hæfilegt að þjóðin fengi í skatt af þessum heimildum? Það er rétt að rifja það upp, 10%, fannst þér að væri hæfilegur skattur sem renni til þjóðarinnir. Þannig voru 100 tonn af þorski seld fyrir 450 miljónir. Hæfilegur skattur að þínu mati var 45. mkr til þeirra sem eiga auðlindina. Þannig sátu eftir yfir 400 miljónir króna af þessum viðskiptum hjá seljanda netto. Það breytti engu þó að seljandinn fjárfesti síðan í sjávarútvegi, eða færi með peningana til Tortola. Enda var staðreyndin sú að fjöldin allur sem seldi aflaheimildir fóru með þær úr landi, fjárfestu í verslun í Reykjavík og víða. Enginn vafi er á þvi að hluti af snjóhengjunni sem hangir yfir okkur nú  er fóðraður með þessum peningum sem mynduðust vegna sölu aflaheimilda. Nú telur þú það mikilvægasta að afnema þetta gjald sem nú er verið að leggja á sjávarútveginn. Allur almenningur er skattpíndur, hvar er þínar áhyggjur þar? Þú ætirr að skammast þín Einar Kr. Vonandi færðu aldrei það umboð frá íslenskum almenningi til að haf eitthvað með sjávarauðlindina að gera.
mbl.is „Munum afnema veiðigjaldið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband