Afsakið ég er í rangri frétt.

Í dag hljóp ég yfir mbl. eins og ég geri flesta daga. Ég rak m.a augun í að þessi Íslenska stúlka ætlaði að láta mynda sig á brókinni. Ég las einnig um að hvalskurður væri hafinn í Hvalfirði. En þegar farið er yfir hvað er mest lesið á mbl er það ekki að hvalskurður sé hafinn , heldur að íslensk stúlka hafi ákveðið að láta mynda sig á brókinni. Hugur minn stefndi til þess að hæla Kristjáni Loftsyni. Að þessi maður skuli standa enn uppi, beinn í baki og óbrotinn. Enn á ný setu hann í gang tvö skipa sinna og hvalstöðina í Hvalfirði. Batterí sem veitir tugum eða hundruðum manna vinnu. En það sem skorar hærra í lestri á mbl er að Íslensk stúlka ætli að láta mynda sig hálf bera. Stundum er er þetta þjóðfélag svolítið skrítið.
mbl.is Ásdís Rán á forsíðu Playboy í júlí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

haha þú hlítur að vera eitthvað klikkaður ef þú hefur meiri áhuga á hvölum en konum..

- (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband