Góðir eigendur og slæmir.

Upp úr hruninu 2008 leitaði mjög á huga minn hverjir væru góðir eigendur af fyrirtækjum.Væri best að lífeyrissjóðirnir ættu öll fyrirtæki og síðan væru sjóðirnir með sérfræðinga á sínum snærum.Væru kannski gott að starfsmenn sem vinna í fyrirtækinu ættu góðan hlut í þeim. Í mínum huga tók ég sem dæmi ef sjómennirnir á skipum Bergs Hugins ættu 15-20% í útgerðinni.Ef forstjórinn keypti þyrlu til að skutlast á milli lands og eyja er ég hræddur um að sjómennirnir segðu " halló" er þörf á þessu. Ég reifaði þessum hugmyndum mínum á fundi í Valhöll.Mér er sérstaklega minnistæður einn náungi sem hnussaði og og spurði "viljið þið bæjarútgerð" Þetta var sami maðurinn sem var stjórnarformaður og einn stærsti eigandi í SP.kef þegar ruglið stóð hvað hæðst í stönginni. Sami maður og var forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem lagði það sveitarfélag í rúst.Á svona menn er hlustað á í sjálfstæðisflokknum.Nú er Guðmundur orðinn aðaleigandi í HB-Granda með  stuðningi bankans okkar, Landsbankans. Það sem leitar á hugann núna er hvort þetta eru góðir eigendur. Velgengni Guðmundar felst fyrst og frem í útsjónasemi hins helsjúka kvótakerfi. Bankinn lánar upp í rjáfur fyrir kaupunum og fær óhemju tekjur út úr sjávarauðlindinni, sem hann lánar síðan okkur með okurvöxtum. Eftir situr sú spurning hverjir eru góðir eigendur. Ég fann það á þessum fundi mínum í Valhöll að það var ekki minnsti áhugi fyrir að ræða þessa pólitísku spurningu mína. Við höfum þetta bara eins og verið hefur.

 


mbl.is Segir sig úr stjórn HB Granda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæfileikar Kristjáns felast í því að gera ekki neitt.

Eftir hrun var Kristján Þór fengin til að endurskoða hið félagslega kerfi okkar sjálfstæðismanna. Kristján hélt einhverja fundi meðal sjálfstæðismanna. Mætti undirritaður á einn af þessum fundum í Valhöll sem ég hefði betur sleppt. Kristján skilaði af sér verkefninu og viti menn.Hver var niðurstaðan? Það sem vantaði hjá sjálfstæðisflokknum var vara varaformaður, að mati Kristjáns. Þvílík snilld. Hið félagslega kerfi er ekki slæmt það er frekar hægt að segja að það sé ónýtt og jafnvel skaðlegt. Hin félagslega umgjörð sjálfsæðisflokksins er eins í dag og hún var hér í Reykjavík þegar Silli og Valdi voru kaupmenn hér í höfuðborginni. Lítil máttlaus félög drituð niður um alla borg. Ég segi að þessi umgjörð sé skaðleg. Af hverju? Í þessari umgjörð hafa sérhagsmunaöflin tekið völdin og ráða því sem þau ráða vilja. En fyrir þessa snilld sína þ.e að benda á að það vantaði vara varaformann (sem síðan breyttist í ritara) fékk þessi sami Kristján ráðherraembætti. Í síðustu ríkisstjórn var Kristján menntamálaráðherra. Við þessu embætti tók síðan Lilja Alfreðsdóttir. Sennileg er vandfundinn einn íslendingur sem telur að við það að Lilja tók við menntamálum hafi væntingar minnkað til málaflokksins. En að sjálfsögðu fékk Kristján Þór annað ráðuneyti. Atvinnuvegaráðuneytið þar sem sjávarútvegsmálin eru vistuð. Útilokað er að finna betri mann sem gerir nákvæmlega ekki neitt í þessum málaflokki. Þrátt fyrir stórkostlega þörf. Ef umgjörðin væri sú sama í stjórnmálum og fótbolta væri löngu búið að selja Kristján Þór fyrir slikk til neðrideildar liða. En svona getur grasserað í sjálfstæðisflokknum meðan hið félagslega kerfi er meira en ónýtt.


mbl.is Ekki rétt að endurskoða hvalveiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband