Góðir eigendur og slæmir.

Upp úr hruninu 2008 leitaði mjög á huga minn hverjir væru góðir eigendur af fyrirtækjum.Væri best að lífeyrissjóðirnir ættu öll fyrirtæki og síðan væru sjóðirnir með sérfræðinga á sínum snærum.Væru kannski gott að starfsmenn sem vinna í fyrirtækinu ættu góðan hlut í þeim. Í mínum huga tók ég sem dæmi ef sjómennirnir á skipum Bergs Hugins ættu 15-20% í útgerðinni.Ef forstjórinn keypti þyrlu til að skutlast á milli lands og eyja er ég hræddur um að sjómennirnir segðu " halló" er þörf á þessu. Ég reifaði þessum hugmyndum mínum á fundi í Valhöll.Mér er sérstaklega minnistæður einn náungi sem hnussaði og og spurði "viljið þið bæjarútgerð" Þetta var sami maðurinn sem var stjórnarformaður og einn stærsti eigandi í SP.kef þegar ruglið stóð hvað hæðst í stönginni. Sami maður og var forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem lagði það sveitarfélag í rúst.Á svona menn er hlustað á í sjálfstæðisflokknum.Nú er Guðmundur orðinn aðaleigandi í HB-Granda með  stuðningi bankans okkar, Landsbankans. Það sem leitar á hugann núna er hvort þetta eru góðir eigendur. Velgengni Guðmundar felst fyrst og frem í útsjónasemi hins helsjúka kvótakerfi. Bankinn lánar upp í rjáfur fyrir kaupunum og fær óhemju tekjur út úr sjávarauðlindinni, sem hann lánar síðan okkur með okurvöxtum. Eftir situr sú spurning hverjir eru góðir eigendur. Ég fann það á þessum fundi mínum í Valhöll að það var ekki minnsti áhugi fyrir að ræða þessa pólitísku spurningu mína. Við höfum þetta bara eins og verið hefur.

 


mbl.is Segir sig úr stjórn HB Granda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband