30.8.2014 | 19:08
Hvernig hefði Laxnes skrifað um kvótakerfið?
Árið 1968 skrifaði Laxnes bókina Kristnihald undir jökli. Í kaflanum þar sem fram kemur að séra Jón prímus hafi farið yfir fjöllin að gera við hraðfrystihús. Umbi er að færa Úu þessi tíðindi og Úa spyr. Hvað er hraðfrystihús? Umbi svarar. "Það eru íslensk fyrirtæki. Spaugararnir reisa þau fyrir styrk frá ríkinu, síðan fá þeir styrk af ríkinu til að reka þau, þvínæst láta þeir ríkið borga allar skuldir en verða seinast gjaldþrota og láta ríkið bera gjaldþrotið: Ef svo slysalega vill til að einhvertíma kemur eyrir í kassann þá fara þessir grínistar út að skemta sér. Nú er kominn miljón til að gera við eitt svona fyrirtæki hér hinumegin við fjallið og þá er náttúrulega strax kallað á séra Jón. Konan: Er þetta kannski eitthvað í líkingu við það sem kallað var íshús hér áður fyrri? Umbi: Svipuð hugmynd; önnur kynslóð"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.