25.4.2010 | 19:49
Vogunarsjóðir voma yfir kvótanum.
Nú hafa vogunarsjóðir komið auga á verðmæti kvótans innan hina föllnu banka. Áformin eru skýr. Þeir ætla og eru eflaust á góðri leið með að hirða þessa verðmætustu auðlind þjóðarinnar. Helstu rök útgerðarinnar fyrir inngöngu í EB er að þá lendi fiskveiðiauðlindin í höndum útlendinga. Á meðan menn deila um inngöngu eða ekki, sjúga erlendir vogunarsjóðir fiskveiðiauðlindina til sín. Án þess að við fáum nokkuð í staðin. Getur málefni sjávarútvegsins verið í ömurlegri og nöturlegri stöðu? Í mínu huga þarf sjálfstæðisflokkurinn að biðja landsmenn afsökunar á afspyrnu lélegri stjórnun á sjávarauðlind okkar síðustu árin.Það er þörf á tiltekt innan flokksins hjá okkur sjálfstæðismönnum. Þessi fyrsta frétt í sjónvarpinu í kvöld fær mann til að fá ónotahroll.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Mikil guðs blessun yrði það nú fyrir landið og miðin, ef svona 50% af sjálfstæðisflokknum væri á sömu skoðun og þú. Það er þetta sem þarf, um leið og skipt er um fólk í æðstu stöðum.
Bjarni Kjartansson, 25.4.2010 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.