8.4.2010 | 15:32
Hver rændi bankann?
Bjarni Ármannsson söng einhvertímann með Stuðmönnum um svartapétur sem ruddist inn í bankann með byssuhólk í hvorri hönd. Jón Ásgeir sagði okkur frá því að Davíð Oddson hafi fyrir hönd Íslenska ríkisins rænt bankann um hábartann dag. Nú segir Vilhjálmur Bjarnason lektor í HÍ að bankinn hafi verið rændur innan frá af þeim Jóni og Pálma. En það sem er á hreinu í þessu dularfulla bankaráni er að ræninginn gengur laus. Síðustu bankarán sem hér hafa verið framin, hafa verið framin af mönnum í sárri lausafjárþörf. Það er á mörkum að ræningjarnir hafi náð að far í ríkið og fagna, þegar árvökul lögreglan hefur upplýst málið og bankaræningjarnir keyrir umsvifalaust austur fyrir fjall. En í þessu bankaráni þarf ekki að keyra neinn austur fyrir fjall. Reikningurinn er sendur á almenninga og málið er dautt.
Segir stefnu tilefnislausa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:37 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.