30.3.2010 | 17:19
Um hvað snýst óánægjan um kvótann og kvótakerfið?
Óánægjan með kvótakerfið er farinn að breiðast út sem eldur í senu. En af hverju fer þessi óánægja svona stig magnandi og getur ekki endað nema á einn veg. Svarið er tiltölulega einfalt. Þetta snýst um skiptingu þjóðarauðlindar. Þjóðin er einfaldlega að segja. Verðmætum úr þessari auðlind verður að skipta jafnar og réttlátar á milli þeirra sem hana eiga. Fiskurinn í sjónum er 100% séreign tiltölulega fárra einstaklinga sem voru aðallega valdir af fyrrverandi bankamönnum. Þeim sömu og komu þessari þjóð á hausinn. Framganga samtaka atvinnulífsins að hlaupa frá borðinu og velja skötuselinn sem kornið sem fyllti mælinn er ævintýralega röng. Líu og samtök atvinnulífsins hafa mörg og mikilvæg rök fyrir sína umbjóðendur. Að ætla að ná árangri með því að hlaupa frá borðinu er röng aðferð. Það verða breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Að ætla að ná árangri fyrir sína umbjóðendur með sömu taktík, hroka og upphrópunum og síðustu ár er vísasta leiðin til að ná engum árangri. Til að ná árangri fyrir sína umbjóðendur þyrfti LÍÚ að skipta Friðriki Arngrímssyni útaf vellinum og setja nýjan mann inná. Staðreyndin er sú að á landinu eru útgerðir og útgerðamenn í hæsta gæðaflokki. Þá reynslu og þekkingu á að nýta. Það er kominn tím til að ná tökum á umræðunni, nú þarf nýjar aðferðirog ný vinnubrögð.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:28 | Facebook
Athugasemdir
Friðrik Arngrímsson þarf ekki endilega að víkja af velli. Setja þarf nýtt forrit í kollinn á honum. Hann er bara málpípa sem segir það sem honum er sagt að segja!
Björn Birgisson, 30.3.2010 kl. 18:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.