Aldrei kaus ég Ólaf Ragnar en nú er hann fremstur meðal jafningja.

Aldrei á lífleiðinni hef ég kosið Ólaf Ragna Grímsson. Hvorki þegar hann var í pólitíkinni í gamladag eða þegar hann sótti eftir umboði til að taka yfir á Bessastöðum. Ég get ekki annað en heillast af Ólafi nú. Hann tekur djarfa ákvörðun sem sem fellur vægast sagt í misjafnan jarveg. En það sem er athyglisverðast er hvernig Ólafur Ragnar fylgir þessari ákvörðun sinni eftir. Hann mætir í viðtöl og stendur sig vægast sagt vel. Ég var að hlust á viðtal við hann á Bloomberg fréttastöðinni og fær Ólafur hæstu einkunn. Hann rífur í sig Fitch og þeirra mat svo ekki stendur steinn yfir steini.  Ef það væri þjóðaratkvæði um hver ætti að tala máli Íslands í útlöndum um Icesave,  setti ég Ólaf Ragnar í fyrsta sæti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Aldrei kaus ég hann heldur en nú er ég þeim sem kusu hann þakklátur.

Offari, 8.1.2010 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband