26.10.2009 | 15:51
Er hagsmunagæsla stóriðja?
Mig hefur löngum undrað það hversu stórt apparat það er sem er að gæta hagsmuna okkar. Bæði ASÍ og Samtök atvinnulífsins eru apparöt sem hafa blásið út á síðustu árum. Með tilheyrandi skrifstofuhaldi og mannafla. Þarf það að vera í litlu landi sem Ísland er að það þurfi hundruð manna til að gæta hagsmuna þeirra sem landið byggir? Í þessum apparötum virðist vera sama formúla og í hernaði þ.e fjölgum í hernum og sýnum máttinn. Lítill sjálfsgagnríni virðist vera innan þessa samtaka. Ekki einu sinni nú þegar þörfin til sparnaðar er verulegur. Þannig eru allar líkur á að heilbrigðiskerfið okka skaddist og það jafnvel verulega. En á sama tíma er engin eða lítil krafa um að þessi apparöt skeri fitina af sínum eigin samtökum.
Fundað um yfirlýsingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
FELLUM FJÓRFLOKKINN, KLANIÐ BURT.
HVERNIG VÆRI ÍSLAND ÁN STJÓRNMÁLA
Tók þetta án leyfis frá Cillu Ragnarsdóttur alveg ljómandi samantekt
Cilla Ragnarsdóttir: Samspilling hvað?
Benedikt Stefánsson var í Greiningardeild Landsbankans og er núna aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar Efnahags- og Viðskiptaráðherra.
Björn Rúnar er skrifstofustjóri í Viðskiptaráðuneytinu. Hann var forstöðumaður í Greiningardeild Landsbankans
Edda Rós er núna fulltrúi Íslands í AGS í gegnum Samfylkinguna. Hún var forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans
Arnar Guðmundsson var í Greiningardeild Landsbankans. Hann er núna aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur Iðnaðarráðherra.
Með svo marga bankamenn í farteskinu, og einnig hafandi í huga að fyrir kosningar kom í ljós að Samfó var sá flokkur sem hafði fengið næstmest í gjafafé frá bönkunum og eigendum þeirra; er ekki þá einfaldlega ljóst hverra hagsmuna stjórnendur Samfó, eru að leitast til með að vera?
Áhugavert einnig, að allir þessir aðstoðarmenn, eru fyrrum starfsmenn Björgólfsfeðga.
Gæti þetta hafa eitthvað með málið að gera?:
Meðfylgjandi er yfirlit styrkja til Samfylkingarinnar frá lögaðilum árið 2006 sem voru hærri en 500 þúsund
* Actavis hf. 3.000.000
* Baugur Group hf. 3.000.000
* Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000
* Eimskipafélag Íslands 1.000.000
* Exista ehf. 3.000.000
* Eykt ehf. 1.000.000
* FL-Group hf. 3.000.000
* Glitnir 3.500.000
* Kaupþing 5.000.000
* Ker hf. 3.000.000
* Landsbanki Íslands 4.000.000
* Milestone 1.500.000
* Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis 1.000.000
* Straumur Burðarás fjárfestingabanki 1.500.000
* Teymi ehf. 1.500.000
* Samtals yfir 500.000 36.000.000
BYLTINGU STRAX
Lúðvík Lúðvíksson, 26.10.2009 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.