7.5.2009 | 13:59
Þjóðarglæpur.
Það kemur æ betur í ljós hversu stór þjóðarglæpur hefur verið framinn hér á síðustu árum. Að brutto skuldir skul vera 10mkr á mann eða netto 5mkr. Maður fær velgju við hugsa um að stórar upphæðir eru vegna þessa að bankarnir voru með glannaleg útlán. Lán til kaupa m.a á snekkjum, einkaþotum og leikföngum veruleikafyrtra manna. Síðan er það börnin mín og önnur íslensk börn sem eiga að greiða sukkið. Svo bíða menn eftir skýrslu einhverrar nefndar sem á að dæma hver er sekur í þessum glæp. Meira að segja viðskiptaráðherrann sem var og áttið að setja leikreglur viðskiptanna segist vera með öllu saklaus. Í mínum huga er það að verð æ skýrara hverjir bera ábirgð á þessum glæp. Það er fyrst og fremst stjórnmálmennirnir sem sátu uppi í heiðursstúku og fylgdust með leiknum og hvöttu sína menn. Á kvöldin fóru þeir síðan heim og grilluðu, og fögnuðu góðu dagsverki. Að íslensk þjóð skuli treysta best sama fólkinu og sat í heiðursstúkunni til að stjórna hér áfram er ótrúlegt.
3100 milljarða skuldir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki gleyma að þeir sem sátu í heiðursstúkunni fengu þokkalega vel borgað fyrir greiðan plús ,,lán'' á undraverðum kjörum. Það er svo spurning eftir hverjum þessi bíður
panna (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 14:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.