17.2.2009 | 07:42
Keyrði um á gömlum Volvo.
Ingvar Kamprad hinn sænski sem stofnaði IKEA og er í einu af toppsætunum yfir ríkustu menn í heimi keyrði um og átti gamlan Volvo. Gamli Volvoinn þjónaði og dugði hinum sænska frumkvöðli vel. Þegar maður les frétt eins og þessa, kemur þetta upp í hugann. Ég veit ekki af hverju.
Seldu lúxusbíla Kaupþings | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:32 | Facebook
Athugasemdir
Ingvar Kamprad heitir maðurinn.
Jón Steinar Ragnarsson, 17.2.2009 kl. 08:12
Ég held að íslendingar, margir hverjir, mættu taka sér þennan mann til fyrirmyndar. Þessi græðgisvæðing undanfarinna ára hefur sett þjóðina á hliðina og þeirri væðingu verður að linna. Við komumst alveg á milli staða þó að ekki sé 10 - 11 milljóna ökutæki undir rassgatinuá okkur.
Sjálfur ek égum á 10 ára gömlum Opel og er ekkert á leiðinni að endurnýja hann. Gamalter gott !
Hilmar Sigvaldason, 17.2.2009 kl. 20:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.