Ef evran kemur fer þá kreppan?

Þessa spurningu fékk ég frá dóttur minni sem er 8 ára. Fleiri spurningar af þessu tagi verða æ fleiri með hverjum deginum sem líður. Verður þetta betra ef Obama verður forseti í Ameríku? Þessar spurningar koma gjarnan þegar minnst varir og ekki í samhengi við það sem er verð að ræða í það og það skipti. Það segir mér að þessar kreppufréttir eru farnar að hafa áhrif á börnin mín. Mér dettur í hug hvort fréttastofurnar ætu að vera með sérstaka fréttatíma fyrir börn, svipað því sem stöð 2 er með í sambandi við krakkaveðurfréttir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband