11.5.2017 | 16:22
Nú á að flagga í hálfa stöng um land allt.
Hér speglast algjör aumingjaskapur þingkjörinna fulltrúa fólksins sem byggir þetta land. Stjórnmálamenn hafa framselt valds sitt til banka og útgerðamanna. Sameiginlega þ.e útgerðamenn og bankar mynda verð á aflaheimildum hvort heldur til lengri eða skemmri tíma. Alþingismenn eru aumir áhorfendur og taka aðeins við fyrirmælum frá útgerðamönnum um að þetta sé besta kerfi í heimi. Langbest sé að bankar og útgerðamenn ráði þessu. Afraksturinn er að heilu fljótin af peningum runnu til aflandseyja og bankinn hélt sérstakt námskeið hvernig hægt væri að komast hjá skattgreiðslu vegna þessara fjármuna. Ein birtingarmynd af þessari óstjórn birtis í þessari frétt þar sem tugir manna er aðeins "delete" eining í exelskjali. Nú er tíminn og tækifærið til að taka þetta vald af bönkum og útgerðinni og færa það til þeirra sem auðlindina eiga. Þetta er sorglegur dagur fyrir minn gamla heimabæ og ærið tilefni til að flagga í hálfa stöng.
86 sagt upp störfum á Akranesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:39 | Facebook
Athugasemdir
Grandi er hlutafélag. Það þýðir að þér er frjálst að selja allar þínar eigur og kaupa hlut í fyrirtækinu. Þá getur þú mætt á aðalfundi og kosið um rekstur og framtíð fyrirtækisins. Það er hjáróma sú rödd sem engu vill hætta.
Miðað við arðgreiðslur og hlutabréfaverð þá hefðir þú bara tapað 3% ef þú hefðir keypt fyrir ári síðan. Og svo ef þú verður mótfallinn því að tapa peningum þá getur þú selt þig út úr greininni og sett peningana annað, en það er illa séð og talið jaðra við landráð.
Espolin (IP-tala skráð) 11.5.2017 kl. 16:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.