30.12.2011 | 21:52
Suðupottur.
Allir sjá að stjórnarskútan er orðin það hrip lek að það er útilokað að nokkur framtíð geti verið í henni. Það er þyngra en tárum taki að nú þegar við þurfum yfirburðastjórn og stjórnendur skulum við vera í þessum sporum. Það brýnasta er að þjappa þjóðinni saman. Standa saman um hvað ? Betri afkomu bankanna og meiri völd til þeirra? Nei, það þarf að gefa fjölskyldunum í landinu von. Von um að byggja aftur upp eftir það eignahrun sem varð á siðasta áratug. En brýnast af öllu er að færa völdin frá bönkunum og yfir til fólsksins sem byggir þetta land og á.
Fundahöld um allt hótelið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Besta nýársgjöfin sem hún gæti gefið þjóðinni.
Hörður Einarsson, 30.12.2011 kl. 22:01
Árni Páll hefði átt að bjóða sig fram gegn kellingunni, hann er mikill foringi
Bernharð Hjaltalín, 30.12.2011 kl. 22:04
Rétt var að kippa ráðherrastólunum undan Jóni Bjarna og Árna Páli. En það er ekki nóg. VG skal losa sig við Jón, en hann á til húsa hjá hækjunni eins og hinn “redneck”-inn, Ásmundur Einar. Þá skal sparka Árna Páli upp í Valhöll, þar finnur hann sína skoðanabræður. Númer tvö er að gera ríkisstjórninni kleyft að sitja út kjörtímabilið + það næsta og halda Hrunflokkunum, Íhaldinu og hækjunni þar sem þeir eiga að vera, í stjórnarandstöðu, í skammarkróknum. Þjóðin getur ekki sætt sig við erfðaprinsa Reykjavíkur auðvaldsins, silfurskeiða gikkina. Bjarna Vafning og Sigmund Kögunar í nein embætti, þar sem þeir gerðu lítið annað en að skara eldi að eigin köku. Spillingin er þeim í blóð borin.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 22:15
Fundir í öllum skotum, þarna er er best lýst samspillingunni, en það að ræða við samspillingarfólk er oft eins og ræða við vegg.
valli (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 22:17
Blaður blogg án innihalds
Jón Sigurpáll Salvarsson (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 23:00
Það er flugeldasýning í boði ríkisóstjórnarinnar
valli (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 23:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.