25.3.2010 | 16:39
Hvernig verður veröldin eftir 20 ár?
Hefði einhver spáð því fyrir 20-30 árum að Independent yrði selt til KGB manns á eitt pund hefði sá spádómur þótt býsna ruglaður og absúrd. En svona getur raunveruleikinn verið lyginni líkastur. Ég hef fylgt sjálfstæðisflokknum þessi 20-30 ár. Ástæðan hefur verið einföld, sjálfstæðisstefnan hefur legið hvað næst mínum pólitískum skoðunum meira en nokkur önnur, um frelsi einstaklingsins til orða og athafna. Nú upp á síðkasti hef ég leitt að því hugann meir og meir hvað sjálfstæðisflokkurinn er farinn að líkjast meira og meira gamla komunistaflokknum á tímum gömlu sovétríkjanna. Þegar svona er komið er eðlilegt að spurt sé. Hvernig verður veröldin eftir 20-30 ár? Ef hún verður þá til.
Independent selt á 1 pund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:45 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.