3.3.2019 | 22:19
Þetta var það sem okkur vantaði.
Nú opnast tækifærið að rækta hatrið í okkur öllum. Nú leggjum við til hliðar þessa helvítis ástina sem er alla að drepa. Í framhaldinu fáum við mörg fín stríð til viðbótar þeim sem við höfum nú þegar. Vopnaframleiðendur græða á tá og fingri. Hvað er betra fyrir mannskepnuna en gott hatur út í náungann. Við hér á Íslandi gætum haft forystu í þessum málaflokki. Við höfum fullt af fólki á alþingi sem gætu verið fulltrúar okkar í þessum málaflokki á erlendri grundu. Kannski endar með því að Gunnar Bragi fái sendiherrastöðu.
Þjóðin verður ekki fyrir vonbrigðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |